miðvikudagur, ágúst 10, 2005
Góðar litabækur eru ekki auðfundnar
Jæja þá. Ég er að fara til Póllands á laugardaginn kemur. Var að koma af fundi í Glerárkirkju, þar sem ég verð að vinna í barnastarfinu í haust og vetur og vor.
Ævar er farin í Austviðinn, leikur þar hermann af mestu list, af bestu lyst.
Við erum að ímynda okkur að við séum svona á þessum tíma í alvörunni, í kringum WW2, og ég náttúrulega verð í Póllandi, hann í hernum... allir voða leiðir yfir því og sjóleiðis. Já, nei ég fer flugleiðis til Póllands. Nei, ekki með flugleiðum heldur fyrst með Iceland Express og svo með Ryan Air.
Ég veit eigi hvað segja skal meir, ekkert stórtækt hefur drifið á daga mína undanfarið.
Er komin í 45. borð í Tímon og Pumbaa leiknum.
Ég er búin að lita nokkrar myndir í Harry Potter litabókinni sem ég keypti um daginn, Ævar keypti sér líka HP litabók. Góðar litabækur eru ekki auðfundnar, því við fórum búð úr búð til að leita að skemmtilegum litabókum um daginn. Loksins fundum við eitthvað almennilegt þegar við komum í Bókabúð Jónasar og fundum þar Harry Potterinn okkar. Svo fórum við og keyptum okkur liti.
Já, sem sagt, ekkert voða mikið búið að gerast, jú, skráði mig í Amnesty International og hvet ég alla til að gera það.
Unnur Birna 18:26 #