sunnudagur, apríl 10, 2005
Jæja, hmm, kannske er sniðugt að skrifa nokkrar línur hérna!
Nú erum við byrjuð að sýna Ríginn, og það er alveg stórkostlegt. Forsýning og forsýningarpartý var á fimmtudaginn var og fór Þorleifur frá okkur daginn eftir. Það var mikil stór kveðjustund í Ytri-Vík.
Fyrir viku þurftum við að hanga á sviðinu í milljón ár, frá hádegi laugardags til klukkan 6 á sunnudagsmorgunn. Það slokknaði á mér, ég lyppaðist niður í gólfið og það þurfti að halda mér uppi þegar ég átti að standa í einhverju ljósi. Það var sem sagt verið að lýsa sýninguna, þetta eru engar smá græjur maður!
Frumsýning var í gær og gekk hún vel, þótt ég væri með smá hita og kvef og kjaftæði. Panodil er svarið við öllu, remedíur, sterar og doxýtab, vibbamixtúran hennar Unnar Möller, fjallagrasahálsmixtúra, strepsils, heitt vatn og hvítlaukur. Heppilegt að hún Ugla sé ekki búin að smitast af kvefinu sem ég er með. Hún Ugla er hörkukvendi verð ég bara að segja.
Það er sýning í kvöld og ég er líka að spila á tónleikum í Deiglunni... Oh, ég nenni ekki að blogga það sést á skrifum mínum hvað ég er ekki í stuði til þess. Thoh, það er ástæða fyrir því af hverju maður sleppir því í svo langan tíma. Það er samt svo margt sem ég þarf að segja! Æh, það bíður betri tíma.
Unnur Birna 14:06 #