mánudagur, júlí 21, 2003
JAAAAHHHJA. Ég ætla ekki láta Ævar fara í taugarnar á mér að þessu sinni. Já, í gær fór ég austur að Laugum, í dal dalanna (dalverpi dalanna) NAUTS!!! Um leið og ég skrifaði Laugar byrjar lag í útvarpinu, "Við gengum tvö" sem er eftir Fikka, mann sem var á Húsavík og er þetta lag, sem ég best veit eða 'söguþráðurinn' gerist á Laugum. ÆH ég get ekki tjáð mig. En ég fór að Laugum í gær með min famili og frænku minni og bestustu bestu vinkonu minni, henni Huldu. Svo var frænka og vinkona Dagnýjar Höllu, Hildur Hlíf með líka sem á heima í Kópavogi eins og Hulda mín. (Það er gott að búa í Kópavogi.) En já, áfram með marmelaðið. Við fórum í sumarbústað Hjalta Jóns og Svanhvítar og þau voru þar með Jóhönnu Lan. Svo löbbuðum við Hulda á gamlar æskuslóðir (við bjuggum þarna báðar í æsku) og heimsóttum bestasta besta vin okkar hann Þorberg! Það var yndislegt að við skyldum öll hittast aftur. Við lékum okkur nefnilega öll saman hér í gamla daga. Ekki versnaði það þegar Ási, fyrrverandi bekkjabróðir Huldu, og vinur okkar líka birtist allt í einu í dyrunum. Við töluðum um heima og geima og geima og heima (eins og Geimir og Hestur forðum...nei ég meina Heimir og Gestur...).
Svo kom að kveðjustund. Reyndar var hún mjög löng, því Bergur og familía eiga feitasta kött í heimi, hann Bjössa en ég var með Rex, mjóssssta kött í heimi. Það þurfti að mynda okkur með kettina og svona...
En já, ég vildi ekki fara frá Laugum (allavega ekki alveg strax) og það, skal ég segja þér lesandi góður, það hefur aldrei gerst. Þ.e. að vilja ekki fara frá Laugum. Hihh...
Unnur Birna 18:22 #