mánudagur, janúar 13, 2003
Halló. Ég er búin í fyrsta prófinu! Stærðfræði! Ekki spyrja hvernig gekk, ég segi það síðar.
Svo er ég að fara í fiðlutíma klukkan 9:45 í fyrramálið og svo að lesalesalesalesa, lesalesa og lesa.
Danska er á miðvikudaginn því næst enska og svo eftir helgi koma efnismestu prófin. Jarðfræði, íslenska og franska. En uhh... hvað er ég að kvelja ykkur með mínum þjáningum...
Neineineinei, ekki svona hugarfar, það er svo gaman í prófum! >I LOV IT< (lesist aftur á bak, það á ekki að vera E)
Jæja jæja, til hvers er ég að þessu...það les þetta hvort sem er enginn (nema þær þrjár persónur sem eru í gestabókinni) Ég elska ykkur!!
(ég vil ekki fá mér svona telljara eins og svo margir eru með, þá sér fólk hvursu fáir nenna að lesa ævisögu mína. Uhuhuhu!! Grenj grenj!
Nei nei, ég verð bráðum rosa svaka obbosslega fræg! Þið sjáið til þess!!
Hin ómótstæðilega og ofurskemmtilega ég.
Unnur Birna 20:22 #