þriðjudagur, janúar 07, 2003
Hæ. Ég var að koma af Chicago æfingu. Það er sko leikritið sem við í MA erum að fara að setja upp. Það er söngleikur og ég leik konu sem heitir Roxy Hart. Það er þokkalega stórt hlutverk, en ég vildi leika hana... og ég fékk að leika hana! Sko... við æfðum nokkra þætti í dag. 1. þáttinn, þar sem Roxy Hart og Fred Casely eiga að... æj, sko, hún er gift Amosi, en er búin að halda við Fred í e-n tíma. Svo byrjar leikritið á því að Velma Kelly syngur og Roxy og Fred leggjast í rekkju saman. Svo stendur Fred upp og þau segja e-r setningar og svo skýt ég hann og hann segir eitthvað: "Krrrrrúttttttið miiiiitttttttt!" og drepst með tilþrifum, en þá segi ég (Roxy) "Vert þú ekkert að krútta mig, drullusokkurinn þinn!" og drep hann endanlega. Spes. En svo þarf bara að koma að sjá þetta ægilega skemmtilega leikrit! Er það ekki? Þetta var sko bara 1. þátturinn. Svo er meira af skemmtilegum lögum og þáttum. En takk fyrir í bili!
Unnsí
Unnur Birna 21:52 #